Valmynd
Heimalagaður hamborgari með BBQ dressingu og nachos



Uppskrift
4 stk hamborgarabrauð
ostur eftir smekk
600 g eðal nautahakk
1 hvítlauksgeiri fínt rifinn
½ msk. cumin malað
1 msk. dijonsinnep
1 tsk. Blue Dragon chilimauk
1 egg
svartur pipar úr kvörn
1½ msk. sjávarsalt

Sætur rauðlaukur
½ rauðlaukur
1 tsk. flórsykur
1 tsk. hvítvínsedik

BBQ dressing
80 g BBQ sósa
1 dós af 18% sýrðum rjóma
1 msk. salt

Meðlæti
1 avocadó
1 bufftómatur
4 súrar gúrkur
1 poki klettasalat
Leiðbeiningar
Blandið öllu hráefninu saman í skál nema ostinum og brauðinu. Mótið fjóra fallega hamborgara. Hitið grill eða grillpönnu og grillið borgarana eftir smekk.

Hitið brauðin í ofni eða á grilli og raðið borgurunum saman.

Sætur rauðlaukur
Skerið rauðlaukinn fínt niður, hellið sykrinum og edikinu yfir og blandið vel saman. Látið standa í 30 mínútur áður en borið er fram.

BBQ dressing
Blandið BBQ sósunni og sýrða rjómanum saman í skál.
Fyrir: 4

Uppruni uppskriftar: Noatun.is