Valmynd
Pizzasnúðar Hveiti- og glútenlausir



Uppskrift
3 stór egg.
130g. rjómaostur.
1 msk. Husk
1.5 msk. oregano krydd
1 tsk. hvítlauksduft
Annað krydd sem ykkur finnst gott
Leiðbeiningar
Þeytið saman egg og rjómaost og blandið svo huski og kryddi saman við. 

Látið deigið standa í 5 mínútur.

Setjið á smjörpappír eða bökunarpappír sem búið er að pennsla með olíu.

Deigið var aðeins minna en heil skúffa.
Bakið á 175 gráður í ca 12 mínútur.
Takið úr ofninum og látið kólna örlítið.

Setjið pizzusósu (ég nota sykurlausa frá Hunt's en er ekki viss um að hún sé glútenlaus) pepperoni, skinku og rifin ost eða annað sem ykkur langar í og rúllið upp brauðinu og skerið í sneiðar.

Hægt er að setja þær beint á bökunarpappír eða gera eins og ég og setja í muffinsform. Stráið smá af rifnum osti yfir.

Setjið aftur inn í ofn á 200 gráður og bakið í ca 5-7 mínútur eða þegar osturinn er orðin gylltur.

Uppruni uppskriftar: Dísukökur