Valmynd
Ofnbakaðir ostborgarar með sesamgljáa



Uppskrift
500 g nautahakk
1 rauðlaukur, skorinn smátt
3-4 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk salt
1 tsk pipar
1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
½-1 tsk paprikuduft
1 dós saxaðir tómatar, vökvinn skilinn frá
ostur í sneiðum, nóg af honum
6 meðalstór hamborgararbrauð

Gljái
8 msk smjör
2 msk púðusykur
1 msk worcestershire sósa
1 msk dijon sinnep
1 msk sesamfræ
Leiðbeiningar
Setjið olíu á pönnu og hitið vel. Setjið nautahakkið á pönnuna og kryddið með salti, pipar, cumin og paprikukryddi.

Bætið lauk og hvítlauk saman við og hrærið reglulega í öllu þar til kjötið hefur brúnast.

Hellið tómötunum út í og blandið vel saman.

Raðið neðri hluta hamborgarabrauðanna í ofnfast mót. Skiptið nautahakkinu niður á brauðin og setjið síðan ríflegt magn af ostasneiðum yfir nautahakkið. Látið efri hluta brauðsins yfir ostinn.

Gerið gljáann með því að setja allt í pott og hita vel saman. Hellið gláanum yfir hamborgarana. Bakið við 175°c í um 25 mínútur.
Um uppskriftina
Þessir ofnbökuðu ostborgarar eru hin mesta snilld.

Frábær tilbreyting frá hinum klassíska borgara, djúsí og bragðgóðir og bornir fram á skemmtilegan hátt.

Hinn fullkomni helgarmatur og stórsniðugir í partýið.
Undirbúningstími: 5 mín.
Eldunartími: 35 mín.
Fyrir: 6

Uppruni uppskriftar: Gulur, rauður, grænn og salt