Valmynd
Uppskrift
  • 1 bolli skorið / saxað spergilkál.
  • 2 stór egg, pískuð.
  • 2 matskeiðar feta costur í bitum.
  • 1/4 teskeið þurrkað dill
Leiðbeiningar
1. Hitið pönnu í miðlungshita. Setjið smá olíu eða smjör á pönnuna. Steikið spergilkálið í nokkrar mínútur (u.þ.b. 3).

2. Blandið saman eggjunum, fetaostinum og dillinu í skál. Hellið blöndunni á pönnuna. Eldið í 3 til 4 mínútur til viðbótar, og snúið svo eggjakökunni við og eldið í 2 til 3 mínútur til viðbótar, eða uns hún er elduð í gegn.
Um uppskriftina
Gott er að bera eggjakökur fram með góðu brauði og fersku salati.

Nota má hvort heldur sem er, ferskt spergilkál eða frosið.
Undirbúningstími: 5 mínútur
Eldunartími: 10 mínútur
Fyrir: fyrir 1

Uppruni uppskriftar: Health.com